Halló.. Prófin nálgast og ég get ekki beðið eftir að komast í jólafrí! Jólaspenningurinn er alveg að gera út af við mig þessa dagana. Þegar prófin eru búin verður sko jólatónlistin stillt í botn, bakaðar smákökur, þrifið og skreytt, borðaðar mandarínur, skrifuð jólakort, keyptar jólagjafir og ekkert stress!
Hlakka ekkert smá til að gefa jólaundirbúningnum lausan tauminn..
Fórum í sveitina um helgina. Það var árshátíð hjá Andreu og Ásdísi í Hafralækjarskóla og ég lét mig að sjálfsögðu ekki vanta þar. Alltaf gaman að sjá litlu systurnar brillera á sviðinu, maður fyllist stolti og ekki laust við að tár bliki á hvarma. Á eftir var svo heil mikið dansi ball. Við mamma stóðum okkur afar vel í marseringunni og við Óli tókum góðan snúning, viðstöddum til mikillar skemmtunar. Við vorum nefnilega ekkert ofsalega fær, en mikið skemmtum við okkur vel! Við reyndum líka að sannfæra gesti og gangandi um að Stella, betur þekkt sem Stella Spiderman, væri barnið okkar en ekki Guðfinnu. Svei mér þá ef það gekk ekki bara ágætlega!
hehe..
Á laugardaginn var svo farið í kaupstaðarferð í vægast sagt vondu veðri, stormi og beljanda, og heilsað upp á tengdó og ömmu Þóru og afa Hreiðar. Amma Þóra gaf mér þennan líka dýrinds kjól sem hún hafði átt og ofsalega fínt pils. Verð einhvern tímann að taka mynd af mér í kjólnum og sýna ykkur.. ég er algjör prinsessa í honum!
Ég fékk líka svakalega fínt veski frá tengdó, en þau voru að koma frá London! ..Ohh.. mig langar til London..
Við heilaga hárþrenningin hittumst svo og snæddum saman kvöldverð í vikunni sem leið.. Farið var yfir helsta slúðrið í heiminum í dag og hlegið af Freyju uppistandara!
Takk fyrir yndislegt kvöld, stelpurnar mínar..
Á sunnudaginn kom svo Dagrún í heimsókn til mín og gisti tvær nætur. Hún var með kynfræðslu fyrir Akureyringa, ekki veitir af að uppfræða unga fólkið.. Það var voða gaman að fá hana. Við borðuðum góðan mat, gerðum neglurnar á okkur geðveikt fínar, skoðuðum gamlar myndir og lágum í leti.. mikið er það nú alltaf gott!
Annars er ekki mikið fleira nýtt af nálinni. Ég fer alltaf í fótboltann á miðvikudögum með Guðfinnu, þar sem við keppum um, af miklum móði, hvor fái minni táfýlu og hvor sé meiri svampur! Maður á kannski ekki að segja frá því, en síðasta miðvikudag eyddum við talsverðum tíma eftir æfingu að þefa upp úr skónum hjá hvor annarri með tilheyrandi hlátrasköllum!! Guðfinna heldur því nefnilega fram að hún hafi aldrei “fengið” táfýlu, eins og þetta sé bara einhver flensa sem sé í gangi!! Einmitt, Guðfinna, einmitt! Það ætlar enginn að segja mér að allir “fái” ekki einhvern tímann táfýlu! Sveittir, blautir fætur lokaðir ofan í skóm í nokkra klukkutíma.. uppskrift sem allir hafa einhvern tímann bakað!! Ekki satt?
hehe.. Það er mikið hlegið á miðvikudögum..
En jæja..
Bless og takk í dag.. Verið nú dugleg að kommenta..
Kv. Ásta Pjásta